Síldarárin 1867-1969
View on Open Library ↗

Síldarárin 1867-1969

4.6 hrs read
Rate this book:
1,151 pages 2019

About This Book

Síldarárin 1867?1969? er einstakt stórvirki um síldarævintýrið í sögu þjóðarinnar. Á þeim hundrað árum sem hér er fjallað um umbreyttist Ísland úr örsnauðu þróunarlandi í tæknivætt velferðarríki. Síldin reyndist þar mikill örlagavaldur, og ósennilegt er að lífskjör væru hér svo góð sem raun ber vitni ef hennar hefði ekki notið við. Þetta ævintýralega skeið hófst með tilraunum Norðmanna til síldveiða undan Austurlandi á síðari hluta 19. aldar; brátt tóku Íslendingar sjálfir við og hagnýttu sér margvíslegar tækninýjungar. Í kjölfarið risu söltunarbryggjur víða um land og sömuleiðis stórvirkar síldarverksmiðjur. Fjölbreyttar nýjar atvinnugreinar ruddu sér til rúms samhliða og ný markaðssvæði opnuðust fyrir afurðir landsmanna. Meðan á veiðum stóð bauðst hér meiri atvinna en nokkru sinni fyrr, allir lögðu hönd á plóg við að skapa auðinn, konur ekki síður en karlar. Sum árin græddu menn vel, önnur síður, auk þess sem veiðarnar færðust frá einum landshluta í annan og þar kom loks að ævintýrinu lauk með nær algjöru hruni í síldveiðum við Ísland.

Buy This Book

As an Amazon Associate and Bookshop.org affiliate, BookOrb earns from qualifying purchases.

Write a Review

Sign in to write a review.