Bókasafnarinn
Bókasafnarinn
1.7 hrs read
Rate this book:
About This Book
Bandaríkjamaðurinn Willard Fiske hreifst ungur af Íslandi. Hann var ástríðufullur bókasafnari og beindi einkum sjónum sínum að íslenskum ritum. Hann safnaði jöfnum höndum fornum fágætisverkum, nýútkomnum bókum, blöðum, tímaritum og smáprenti sem gerði safn hans afar sérstakt og viðamikið. Um tveggja áratuga skeið bjó Fiske í Flórens á Ítalíu en hann hafði á sínum snærum samstarfsmenn, meðal annars unga íslenska námsmenn, á Íslandi, í Kaupmannahöfn og í Kanada við bókasöfnun sína. Fiske ánafnaði safn sitt Cornell-háskóla í Íþöku í Bandaríkjunum þar sem hann var prófessor og bókavörður. Fiske var einnig áhugamaður um skák og stuðlaði að uppbyggingu skáklistarinnar á Íslandi. Þá sendi hann Íslendingum höfðinglegar gjafir og tók ástfóstri við Grímsey. Í þessari einstöku menningar- og bóksögu er fjallað ítarlega um söfnun Willards Fiskes, ævi hans, samstarfsmenn og íslenskan bókakost á nítjándu öld, þar á meðal fágæt rit frá fyrri öldum sem Fiske hafði mikið fyrir að eignast. Kristín Bragadóttir er doktor í sagnfræði frá Háskóla Íslands.
Buy This Book
As an Amazon Associate and Bookshop.org affiliate, BookOrb earns from qualifying purchases.
Write a Review
Sign in to write a review.